|
|
 |
 |
|
Reglur um afreksbikarinn
1.gr. Gripurinn heitir Afreksbikar. Hann er gefinn af Kiwanisklúbbnum KÖTLU 23.febrúar 1991.
2.gr. Afreksbikarinn skal árlega veita þeim félaga eða nefnd klúbbsins sem best hefur staðið sig í starfi á starfsárinu, eftir ákvörðun stjórnar hverju sinni. Forseti skal leggja fram sýnar tillögur og óska eftir tillögum frá öðrum stjórnarmönnum. Forseti er ekki kjörgengur á sínu starfsári.
3.gr. Stjórn klúbbsins skal með leynilegri atkvæðagreiðslu velja viðkomandi á síðasta stjórnarfundi fyrir stjórnarskiftafund. Forseti og kjörforseti skulu telja atkvæðin. Forseti kynnir síðan niðurstöðuna á stjórnarskiftafundi.
4.gr. Stjórn klúbbsins hefur vald til þess að taka gripinn úr umferð, telji hún að afreksbikarinn
þjóni ekki lengur tilgangi sínum.
5.gr. Nafn viðkomandi og ártal skal skrá á bikarinn.
|