Katla
Katla |
Katla heim Katla Fréttir Dagatal Félagaaðild Ljósmynda gallery Skjöl og anað efni
Fræðsluefni
Uppstillinganefnd
 Erindisbréf nefnda
Eyðublöð
Mánaðarskýrsla til Umd.
Breyting á félagaskrá
Inntaka félaga
Leyfi frá mætingum
Tillaga að félagsaðild
Umsókn um félagsaðild
Úrsögn að félagsaðild
Stjórnarskipti
Reglur
Aldursaðild
Heiðursfélagi
Lífstíðarfélagi
Fyrirmyndarklúbbur
Afreksbikarinn
Forsetakeðja
Minnigarsjóður Kötlu
Umdæmisvefurinn
Lög Umdæmisins
 

Reglur um fyrirmyndarklúbb 2008-2009

 

 

 

 

 

Fyrirmyndarklúbbur 2008-2009

1. Að klúbbur sendi alla fulltrúa (forseta, ritara og féhirði) til  allrar boðaðrar fræðslu.
            Gefur 12 stig-4 stig dragast frá fyrir hvern þann sem vantar.

2. Að klúbbur sendi þrjá fulltrúa á umdæmisþing.
            Gefur 12 stig en 4 stig dragast frá fyrir hvern fulltrúa sem vantar.

3. Að klúbbur skili upplýsingum um félagafjölda og stjórn
næsta starfsárs til umdæmisins með maískýrslu.
Gefur 10 stig.

4. Að klúbbur skili mánaðarskýrslum rétt útfylltum og á réttum tíma þannig að þær gefi rétta mynd af starfi klúbbsins.
            Gefur 10 stig, en 1 stig dregst frá  fyrir hverja skýrslu sem vantar eða er skilað seint.          Draga má sumarskýrslur í eina.

5. Að klúbbur standi skil á gjöldum til umdæmisins og KI/KIEF á réttum tíma.
            Gefur 6 stig en 2 stig dragast frá fyrir hvern gjalddaga sem fer í vanskil.

6. Að klúbbur sendi 2 fulltrúa á svæðisráðstefnur sem boðaðar eru í hverju svæði fyrir sig og skili skriflegum skýrslum.                  
Gefur 10 stig. 

7. Að klúbbur fjölgi félögum á starfsárinu (raunfjölgun á tímabilinu). 
            Gefur 5 stig fyrir hvern nýjan félaga.

8. Að meðaltalsmæting á klúbbfundum sé a.m.k. 65%.  Klúbbur með minna en 50% meðaltalsmætingu getur ekki hlotið útnefningu sem “Fyrirmyndarklúbbur”.
            Gefur 15 stig, en 1 stig dregst frá við hvert prósentustig sem mæting er undir 65%. 

9. Að klúbbur heimsæki aðra klúbba. Ekki færri en 5 félagar teljast til heimsóknar hjá klúbbum með 25 félaga eða fleiri, en sé félagafjöldinn undir 25, gefur 20% þátttaka klúbbfélaga heimsóknarstig.
            Gefin eru 5 stig fyrir hverja heimsókn. 

10. Að klúbbur haldi a.m.k. 1 reglulegan stjórnarfund í mánuði  og a.m.k. 14 félagsfundi á starfsárinu.
             Gefur 10  stig  (þarf að koma fram á mánaðarskýrslu).

11. Að klúbbur komi sér upp og/eða uppfæri heimasíðu sína a.m.k. 2x á starfsárinu.
            Gefur 5 stig. 

12. Að klúbbur taki virkan þátt í sameiginlegum fjáröflunar- og styrktarverkefnum á landsvísu eða á klúbbsvæði (K-dagur, Hjálmaverkefni, KEP verkefni, Dansleikur fatlaðra) 
Gefur 10 stig

13. Að klúbbur standi fyrir styrktarverkefnum í heimabyggð í anda kjörorðanna “Hjálpum börnum heimsins”, styðji við unglinga- og æskulýðsstarf með áþreifanlegum hætti eða sinni aðkallandi líknarmálum í heimabyggð á markvissan hátt.
Gefur 10 stig

14. Klúbbur sem tekur skipulega á sínum fjölgunar-málum og nær lágmarks viðmiðunarfjölda klúbbfélaga (25) og klúbbur sem aðstoðar við að endurreisa klúbb eða  styðja klúbb til fjölgunar.
Gefur 10 stig

15.  Að klúbbur gerist stofnaðili nýs Kiwanisklúbbs eða ungliðaklúbbs í svæði, umdæmi eða erlendis.
Gefur 10 stig