|
|
 |
 |
|
Heiðursfélagi
Kiwanisumdæmið Ísland-Færeyja
Heiðursfélagar 7. gr. Skilyrði fyrir heiðursaðild
(a) Sérhvern einstakling sem innt hefur af hendi frábær störf til almenningsheilla má kjósa
sem heiðursfélaga þessa klúbbs (sé sá einstaklingur sem í hlut á ekki virkur félagi né aldursaðildarfélagi sama klúbbs) um eins (1) árs skeið í senn og þar eftir má endurkjósa einstaklinginn sem heiðursfélaga árlega.
(b) Heiðursfélagi skal hvorki greiða árgjald til klúbbsins né önnur gjöld og skal eiga rétt á öllum sérréttindum sem klúbburinn veitir öðrum en kosningarétti og kjörgengi til embætta innan klúbbsins.
(c) Heiðursfélagar eru undanþegnir mætingarskyldu.
Skilgreining: Heiðursaðild er hugsuð fyrir einstaklinga sem ekki eru Kiwanisfélagar en þó hafa klúbbar í einhverjum tilvikum gert félaga í klúbbnum að heiðurfélaga. Ef það er gert ber að afskrá sá hinn sama (sömu) sem Kiwanisfélaga og er félaginn þá einungis heiðursfélagi klúbbsins. Þá þarf ekki að greiða nein gjöld af viðkomandi en um leið missir sá aðili öll réttindi til kosninga og kjörgengi í klúbbnum. Ef þessi Kiwanisfélagi hefur átt aðild að tryggingasjóði Kiwanis fellur sá réttur úr gildi.
Því skulu stjórnir klúbba kynna sér vel hvernig standa skal að gerð aldursaðildar eða heiðursaðildar .. |
|