|
|
 |
 |
|
Minningasjóður KÖTLU
Minningarsjóður Ásgeirs H. Einarssonar
Stofndagur 11.janúar 1968
Reglugerð hjá Kötlu :
1. Sjóðurinn heitir minningarsjóður Ásgeirs H. Einarssonar.
Stofnfé hans eru kr.10.000,- gjöf frá hjónunum Herdísi Hinriksdóttur og
Einars A. Jónssonar til minningar um son þeirra Ásgeir H. Einarsson flugmann.
2. Tilgangur sjóðsins er að standa straum af landgræðslu og
skógræktarstarfi Kiwanisklúbbsins Kötlu.
-
3. Stjórn sjóðsins skal skipuð þrem mönnum úr Kötlu sem forseti skipar til eins árs í senn.
-
4. Fjár til sjóðsins skal afla með:
-
A. Gjöfum til minningar um látna ættingja og vina.
-
B. Áheitum.
-
C. Tækifærisgjöfum og öðrum gjöfum hverju nafni sem þær nefnast.
5. Eigi má veita fé úr sjóðnum fyrr en eign hans hefur náð Kr. 200.000,-
og þó aldrei meira en svo að hún fari niður fyrir þá upphæð.
6. Sjóðurinn hefur sjálfstaðan fjárhag. Peninga sjóðsins skal ávaxta á sem
arðvænastan hátt hverju sinni. Sjóðsstjórn skal skila efnahags
og
rekstrareikning að loknu reiknisári, sem er almanaksárið til forseta Kötlu, eigi síðar en 1. febrúar.
Skilagrein um styrkveitingar fylgi uppgjörsreikningi.
-
7. Breytingar á reglugerð þessari eru sömu skilyrðum háðar og breytingar á lögum
Kötlu. Nafni sjóðsins eða 1.grein reglugerðarinnar má þó eigi breyta nema með
samþykki gefanda eða nánustu afkomenda þeirra.
-
8. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi:
Samþykkt breyting á stjórnarfundi Kötlu 1.apríl 1992
F.h. Minningarsjóðs F. h. stjórnar Kötlu
Árni H. Jóhannsson, formaður. Jón St. Hermannsson, forseti. |
|